Jóhanna
Börn og barnabörn
Könnun
Leigjendurnir mínir??
Láta þá borga heilan mánuð í leigu, sem skaðabætur!
5 atkvæði

Leyfa þeim að þrífa og mála eftir sig
0 atkvæði

Láta þá borga kostnað af málningarvinnu
3 atkvæði

Senda þá heim til sín....
0 atkvæði

Halda kj og þrífa og mála sjálf
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 8
Nauðsynlegar síður!!!
21.04.2008 09:27:40 / margret

NÚNA Á EFTIR

Ég er að fara í almennuprófið eftir 3 tíma....
Nýbúin að borða hafragraut og rúsínur í góðu yfirlæti hér í höfuðborg Íslands....
Er að fara á taugum, bara rétt bráðum.

Kveiktu á kerti fyrir mig, haha

kv Jó


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 11:17:19 / margret

ER ÞETTA DJÓK EÐA??!!

Við hjónaleysin vorum afskaplega ánægð með rasismalausa afstöðu okkar þegar við ákváðum að leigja íbúðina okkar út áður en við fluttum til höfuðborgarinnar í haust. Þrátt fyrir hljóð úr ýmsum hornum varðandi það að leigja pólverjum okkar eigin íbúð stukkum við á það, þetta er jú bara fólk eins og við og þarna ætluðu hvort eð er aðeins að búa 4 manneskjur, ekkert öðruvísi en að þetta væru bara Íslendingar....:)

Stuttu eftir að við fluttum fengum við hringingu frá íbúunum á efri hæðinni. Reyklausu pólverjarnir okkar mökkreyktu nefnilega í íbúðinni 8| 
Við höfðum samband við tengilið okkar, þar sem leigjendur okkar skilja hvorki ensku, dönsku, þýsku né íslensku og báðum um að hann sæi til þess að reykingunum myndi linna. Allt varð gott aftur. Héldum við.

Svolítið seinna fengum við aðra hringingu. Reyklausu pólverjarnir okkar reyktu sem aldrei fyrr. Þeir voru líka ekkert bara fjórir, eins og við héldum  8|
Aumingja íbúarnir á efri hæðinni voru farnir að lykta af tóbaki og fúkkafýlu... eða, þú veist, nánast.
Þá hringdum við í næsta tengilið sem lofaði okkur að taka þá í gegn. Nú stóð okkur ekki á sama.

Við ákváðum að segja þeim upp leigunni og flytja aftur heim. Ekki bara vegna umgengni um íbúðina okkar, en það spilaði samt stóra rullu.
Við vissum alveg að reykingunum hafði ekki linnt og auk þess var augljóst af lyktinni á ganginum að þeim þótti skemmtilegra að spila póker berir að ofan, drekka vodka og reykja en að þrífa hjá sér.

Þá erum við farin að nálgast nútíðina því við fengum íbúðina afhenta að kvöldi 1. mars. Einum degi of seint. Við komum inn á ganginn og tókum andköf. Við opnuðum íbúðina og tókum aðra andköf. "JESÚS MINN, ER ÞETTA DJÓK EÐA???" var það eina sem ég gat stunið upp. Fýlan í íbúðinni var þvílík. Veggir kámugir, klósettið eins og andskotinn, eldavél og ísskápur algjörlega óþrifin og mér liggur við að segja ónýt, rykvefir í gardínunum......
Nökkvi minn fordæmdi lyktina í íbúðinni þegar hann kom þangað inn.... og hann er aðeins tæplega 7 ára karldýr, og ég hélt að þau hreinlega finndu ekki lykt.  ;)

Fúsi talaði við tengilið 3 til að lýsa ástandi íbúðarinnar. Hann lofaði að þeir myndu þrífa íbúðina í gærkvöldi og skilja lykilinn eftir uppi á hillu.
Ég kom þangað í morgun og missti ekki andlitið af þeirri einföldu ástæðu að ég vissi svosem að þeir myndu ekki gera neitt.
Ó jú, afsakið....reyndar opnuðu þeir nokkra glugga.  :whut:

Það er því ljóst að inn í íbúðina okkar flytjum við ekki fyrr en hún hefur verið dauðhreinsuð og almáluð.... í stað þess að við sleppum með að mála tvo veggi íbúðarinnar eins og við ætluðum að gera.

Mér liggur við að lýsa opinberlega yfir afstöðu minni til fólks frá ákveðnu landi, en geri það ekki hér, þar sem fordæmi hefur skapast fyrir sakfellingu þeirra sem meiða æru annarra á internetinu.... og ég hef ekki tíma til að standa í því.

Hvað á maður eiginlega að gera???


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 14:22:37 / margret

Skólalegt sjálfstraust mitt

er í molum. Ekki nóg með að ég hafi rétt fallið í inngangi að lögfræði, heldur druslaðist ég til að falla í Evrópurétti líka. Bíð svo spennt eftir að sjá hversu hátt fallið í Almennunni var, því ef það var hátt, þá held ég að ég hætti þessu bara og byrji í nýju háskólanámi þegar laufin fara að falla af trjánum.... Í FJÓRÐA SINN Á FJÓRUM ÁRUM!!!

Tek það samt fram að gefnu tilefni að ástæðan fyrir þessu hringli er ekki sú að ég geti ekki lært neitt  :)  heldur eru þessar tvær falleinkunnir mínar þær fyrstu í sögunni... Ég á bara svolítið bágt með að ákveða mig :S

Annað sjálfstraust er þessa dagana einnig að fara í vaskinn, svo sem uppeldislegt sjálfstraust mitt þar sem synir mínir hlæja bara að mér (þessar elskur) og einnig gribbulegt sjálfstraust. Þetta gribbulega er hins vegar að færast í aukana innra með mér og þess er ekki langt að bíða að ég verði óhrædd við að gera uppistand og læti ef mér finnst ekki rétt komið að mér, líkt og áður .... en njótið þess bara að koma illa fram við mig þangað til :)

Gleðilega hátíð annars allir saman, og endilega commentið, þó ekki væri nema "hæ"....

kv Jó


» 10 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 00:35:14 / margret

Ég er fokkin fræðatröll

http://www.stilbrot.com/trollafell/konnun/img/fraedatroll.gif">

Fræðatröll


Þú ert vanafastur, tilfinningaríkur innipúki.

Fræðatröllið er forvitið að eðlisfari og er köllun þess í lífinu að komast að sannleikanum. Fræðatröll má gjarnan finna í dimmum skúmaskotum bókasafna þar sem þau rykfalla og sussa á aðra gesti safnsins. Fræðatröllið klæðist gjarnan flaueli - nema þegar það er í tísku. Hringitónninn í síma þess er stefið úr þættinum Nýjasta tækni og vísindi, sem það grætur stöðugt að sé ekki lengur á dagskrá.



Hvaða">http://www.stilbrot.com/trollafell/konnun/">Hvaða tröll ert þú?

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 00:25:21 / margret

Munum hvað við höfum það gott!

Sérstaklega á þessum árstíma.

Það er fjöldinn allur af fjölskyldum sem eiga um sárt að binda þessi jólin og eru áhyggjurnar mikið djúpstæðari en um það hvort fjandans prófið reddist eða hvort náist að kaupa allt fyrir jólin eða hvort börnin verði örugglega ánægð með risapakkana sína.

Með útrás netsins hefur maður mikið betri yfirsýn yfir það sem er að gerast í heiminum, og ekki bara almennt, heldur einnig persónulegt líf fólks, líka sumra sem maður þekkir ekki neitt.

Ég er búin að vera að skoða fjöldann allan af netsíðum í athyglisbrestsköstunum mínum í dag, og hef rekist á allt mögulegt. Sumir hafa ekki efni á að halda jól, sumir fá ekki að vera með sínum nánustu á jólunum. Fólk er að deyja frá fjölskyldunum sínum og fjöldinn allur af litlum börnum eru alvarlega veik.

Fólk er gott, það er á hreinu, og margir til í að leggja sitt af mörkum til að þær fjölskyldur sem eigi um sárt að binda hafi það sem best, allavega um hátíðirnar. Það er þó þannig að því miður verður ekki allt keypt með peningum þó maður komist ansi langt á þeim.

Það er ekki verst í heimi að vera að fara í próf á þessum tíma.

Verum góð hvert við annað og kunnum að meta það sem við eigum.

Jóhanna meyr svona rétt fyrir jólin


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 15:32:23 / margret

Prófið nálgast

Almennuprófið er eftir 5 daga. Föstudaginn 21. des. Stressið og ljótan eru í sögulega hámarki, en þó er eitthvað jafnaðargeð sem blundar þarna niðri einhversstaðar... sem er búið að sætta sig við að það eru próf tvisvar á ári, og jafnvel að sá möguleiki sé fyrir hendi að maður geti alveg fallið, og það sem meira er... að það sé ekki dauðadómur! :)    (Reyndar smávægilegur fjárhagslegur dauðadómur... fuck it!) :|

Ég fékk ekkert í skóinn. :o  Benedikt Nökkvi heimtaði að við foreldrar hans prufuðum að setja skóinn út í glugga. Ég bað hann nú að búast ekki við miklu, þar sem pabbi hans reykti svo mikið og ég væri svo frek, að Pottaskefill myndi nú sennilega ekki vilja gefa okkur neitt. Hann ákvað samt sem áður að skella gömlum spariskó af pabba sínum í gluggann og puma-skó frá mér... þannig að í glugganum voru 4 skór af öllum stærðum og gerðum... og í tvo þeirra kom ekki neitt  :whut:   hvaða mórall er þetta Jóli minn??

Hafið það gott í jólaamstrinu...

kv jó


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 18:32:15 / margret

Sýking í auga... eða hvað???

Það er eitthvað að koma fyrir hægra augað á mér (ég þurfti að lyfta hægri hendinni af lyklaborðinu og skrifa út í loftið til að athuga hvort það væri ekki pottþétt hægri.... hvað er þetta eiginlega? skortur á rýmisgreind???)

Það er semsagt svona rauð bólga hjá táragatinu... og ég get ekki betur séð en að það sé að koma fjólublátt mar fyrir neðan augað... svona sem breiðist hægt og rólega út... svaka smart svona á hátindi prófaljótunnar. :(

Þannig að ef einhvern langar að smita mig af frunsu eða eitthvað, þá er þetta akkúrat tíminn, það getur varla versnað meira ;)

kv Jó


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 18:51:49 / margret

Prófatími

Þegar líður að prófum fara óskemmtilegar hliðarverkanir að eiga sér stað í líkama og á sál háskólanema. Þær eru misjafnar að umfangi en eðli þeirra er í meginatriðum eins á milli manna.

1. Prófaljótan. Hún lýsir sér í óhreinni og bólóttri húð, úfnu hári og jafnvel skítugu, óplokkuðum augabrúnum (gott að vera karlmaður þá!), náttbuxum eða ljótum joggingbuxum, baugum, hálflokuðum augum, aukakílóum (allt að 5, en fer eftir umfangi prófanna), þunglyndi og geðvonsku.

2. Svefnsýki. Lýsir sér með mikilli þreytu og svefni, jafnvel á almannafæri. Nemandinn sofnar við hvaða tækifæri sem er og skiptir oft ekki máli þó hann innbyrði fjölda orkudrykkja, hydroxicut taflna, herbalife, ávaxta, gulróta o.s.frv, þó slík ráð geti haft skammvinn áhrif.

3. Áunnin athyglisbrestur. Einhvern veginn verður óskaplega mikilvægt að gera eitthvað annað en lesa skólabækur. Allar fréttir á mbl.is eru lesnar í þaula, það má ekki vera einn óhreinn gaffall í vaskinum, bloggsíður verða áhugaverðari en allt annað, rykið undir sófanum sem hefur verið látið í friði frá því í síðustu prófatörn verður skyndilega að láta í minni pokann fyrir ryksugunni, já og sumir verða jafnvel allt í einu núna að bera á leðursófann í stofunni, skipulag lestrarins fer í rugl, manni dettur allt í einu í hug að hafa uppi á gamalli frænku sem maður hitti síðast í fermingunni sinni o.s.frv......

Ef einhver á töfraráð við þessum óskemmtilegu kvillum, endilega látið vita!

kv Jó


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 16:53:17 / margret

Háskóli, lögfræði, leikskóli eða dagmamma(?), Melaskóli, Reykjavík, Stúdentagarðar...

Hæhó, allt að gerast!

Færsla dagsins verður stutt en allt það sem er að gerast á næstu dögum er skráð í fyrirsögn. Bið ykkur vel að lifa, skrifa örugglega ekki meira hér fyrr en seinnipart 21. desember :)

kv Súperkusa

jú annars, ég á örugglega eftir að stelast á netið....


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 00:01:27 / margret

Allir sem ég þekki

verða bara að afsaka meint áhugaleysi mitt fyrir vinum og vandamönnum. Málið er ekki að ég vilji ekki hitta neinn og sé föst heima. Þvert á móti nei. En það er bara einhvernveginn svo mikið að gera hjá mér... ekki klisja í þetta sinnið... að ég eiginlega kemst ekki yfir allt sem ég þarf að gera.

Skipuleggja baðherbergið og kaupa bað, flísar og blöndunartæki, ákveða lit á húsið að utan (já, Birkivellir 4 að fá andlitslyftingu :)), hugsa um piltana, reyna að plana hvernig veturinn verður, selja gamla bílinn minn (Skódi til sölu, kostar yfirtöku á láni og tölu....), reyna að halda heimilinu í horfinu (sem er ekki að gera sig) og fleira og fleira.

Er aðeins búin að vera að hressa upp á gömul kynni síðustu daga, sem er bara gaman... en veldur ómældu stressi þar sem annað situr á hakanum á meðan. úúúúúfffffffff

Annars hef ég stórar áhyggjur af því þessa dagana að Jóhanna gribba og Jóhanna skipulagsfrík séu algerlega horfnar og hafi skilið Jóhönnu óöruggu aleina eftir. Hún er allavega ekki alveg að höndla þetta ein og langar mest að leggjast undir feld og bíða eftir að allt verði bara rólegt og áhyggjulaust.

kv Jó


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.08.2007 22:35:31 / margret

Lö lö lö lögfræði???

Haha, já það er komið að því að svara til saka :)

Af hverju lögfræði? Er búin að fá þessa spurningu ansi oft síðustu daga

1. Mér fannst ekkert svo gaman í Kennó. Fínn skóli og allt það, enda held ég að allt sem maður tekur sér fyrir hendur og sekkur sér oní verði skemmtilegt á endanum. Mér fannst það ágætt en ekkert frábært. Ég yrði ekki kennari af hugsjón.

2. Ég hef óbilandi réttlætiskennd og hef gaman af því að velta mér uppúr hinum ýmsu málum, taka afstöðu og rökræða.

3. Mig hefur langað í lögfræði síðan ég var 12 ára eða eitthvað. Hélt bara að það væri eiginlega ómögulegt fyrir einhvern í minni stöðu, með börn og "allan pakkann" eins og maður heyrir oft. En ég hef komist að því að með skipulagningu og áhuga er þetta nám mjög svipað og 100% vinna.

4. Mig langar að verða rík... nei, ég segi bara svona, enda er það ekkert þannig að þegar maður útskrifist úr lögfræði sé maður bara kominn með milljón á mánuði og einbýlishús á Arnarnesinu... Eða er það nokkuð??

 kv Jó


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 12:32:45 / margret

Það hlaut að koma að því...

Nú er ég bara að fara í lögfæðina. Hætt í Kennó og ætla ekki lengur að láta fjarnám eða þægindi ráða vali mínu á námi. "Flott hjá þér" segja sumir, "eigingirni" segja aðrir. Ég reyni samt eins og ég get að láta það ekki hafa áhrif á mig. Mínir nánustu styðja mig allavega í þessu og það er það eina sem skiptir mig máli. (Veit ekki alveg hvort sumir sjái kannski bara fyrir sér gull og græna skóga eftir að náminu er lokið, en það er annað mál...)

Ég er búin að sækja um vist á stúdentagörðunum og búin að skrifa bréf til manneskjunnar sem sér um úthlutun á íbúðunum til að styðja umsóknina og það verður bara að koma í ljós hvort við flytjum í haust eða ekki.

kv Jó


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 16:58:04 / margret

Lögregla slær til unglings

Bíddu, má löggan ekkert gera eða??

http://eyjan.is/blog/2007/07/24/youtube-islenskur-logregluma%c3%b0ur-sl%c3%a6r-til-unglings-me%c3%b0-myndavelasima/

Alveg fáránlegur fréttaflutningur. Gerum lögguna bara algjörlega réttlausa, þá geta allir bara fengið að gera það sem þeim sýnist :(

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 23:33:08 / margret

Hvað er ég eiginlega?

Kosningar í gær... mjög spennandi að vanda. Heldur stjórnin velli eða...??? Já, hún gerði það víst. Veit samt ekki hvort ég er ánægð með það eða ekki...

Ég veit nefnilega ekki hvort ég er hægri- eða vinstrimanneskja.

Hægri: Mér finnst vissulega að allir eigi að geta nýtt hæfileika sína og komist áfram eins og þeir geta. Frjálsræðið sem Sjálftstæðið lofar þóknast mér vel og fleiri möguleikar. Og ég er ekki á því að það eigi eitthvað endilega að jafna fjölda karla og kvenna í nefndum og ráðum... á eitthvað að ráða einhvern frekar en annan af því að hann er með brjóst??

Vinstri: Það má alveg lækka leikskólagjöld, komugjöld á heilsugæsluna, skólagjöld og jafna hlut fólksins í landinu. Það hefur ákveðna kosti að hafa fyrirtæki ríkisrekin (betri þjónusta o.þ.h.)En hvar á að fá peninga í það?? En svo var það náttulega hann Björgvin ofursamfylkingarmann sem barðist fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar á þinginu í vetur. Þumall fyrir honum!

Ég var þungt haldin af valkvíða í gærmorgun þegar ég gekk inn í kjörklefann og tók illa upplýsta ákvörðun um stjórn landsins okkar. Enda í próflestri og hafði ekki kynnt mér flokkana nógu vel...

Næst ætla ég að þræða kosningaskrifstofur... eða hvað gerir maður annars á svoleiðis stöðum???

Bestu kveðjur... síðasta próifð á morgun, ég er illa lesin og lítið sofin, wish me luck!


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 12:33:35 / margret

Þetta mátti sko ekki bíða!

Bloggið sko... það verður einhvern veginn alveg nauðsynlegt að vesenast eitthvað svona rétt fyrir próf. Blogga, uppfæra barnalandssíðuna, taka soldið til og fara í búðir.

Ég reyni samt eins og ég get að læra. Vegna blöndu af viðráðanlegum og óviðráðanlegum orsökum hef ég sko ekkert verið dugleg að læra í vetur. Þannig að ég er búin að fara yfir heils misseris nám á þremur vikum og nú er komin tími til að fara að lesa almennilega fyrir próf. Frumlesa...

Ektamaðurinn fór í bæinn að kaupa sér bíl í gærkvöld, af lýsingunum að dæma var hann sko algjört gull. Svo sá ég gripinn í morgun og hélt ég mundi deyja úr hlátri. Oj barasta! Alveg eins og hver annar ferlega ljótur gamall bíll. Svo setti hann bílinn i gang og ég dó í annað sinn. En þetta er víst voða flott hljóð... samt sama hljóð og heyrist í ónefndri toyotu í hverfinu... sem þarf að fá sér nýjan hljóðkút :)

síjú

JME


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4